|
Þegar lögin um götuskráningu fjórhjóla voru sett, opnuðust ný tækifæri
í ferðaþjónustu hér á landi. Óbyggðaferðir ehf var stofnað í kjölfarið á
þessari lagasetningu haustið 2006. Áður en við stofuðum Óbyggðaferðir
höfðum við ferðast mikið um hálendið frá unga aldri, en feður okkar voru miklir
áhugamenn um íslenska náttúru. Það má segja að ferðir okkar séu í þessum
gamla anda, enda köllum við þetta skoðunarferðir á fjórhjólum.
Hjá okkur starfar eingöngu fólk með áralanga reynslu á ferðamennsku á öllum sviðum
ferðamennsku, allt frá gönguferðum til jeppa og fjórhjólaferða. Við leggjum okkur fram
við að gera hverja ferð einstaka og ógleymanlega. Hver ferð tekur um það bil þrjá tíma.
Við bjóðum einnig uppá lengri ferðir frá Hólaskógi og reynum við að uppfylla óskir manna,
séu þeir með eihvern stað í huga. Hér á síðunni má sjá nokkra möguleika ásamt leiðarlýsingum.
Öll okkar hjól eru að gerðinni Can-Am Outlander Max og eru þau öll tveggja manna.
|