ForsíðaFréttirFjórhjólaferðirHólaskógurMyndirum Óbyggðaferðir


- 26. Janúar 2008 -
Sauna tekið í notkun

Í enda nóvember 2007 hófumst við handa við að reisa veglegt sauna í Hólaskógi
og nú rúmum tveimur mánuðum seinna var það tekið í notkun og vígt með tilþrifum.
Það var starfsfólk Zikzak tískuhúss sem sá um vígsluna, en þau héldu árshátíð sína
sömu helgi.

Við hjá Óbyggðaferðum þökkum öllum þeim sem aðstoðuðu okkur við framkvæmdirnar, en án
þessarar aðstoðar hefði okkur ekki tekist að koma saunanu í notkun í vetur.
Enn er töluverður frágangur eftir að utan, en það bíður til vorsins og verður
þá hlaðið að húsinu og það tyrft að fornum sið.



- 10. febrúar 2008 -
Óbyggðaferðir bæta við hjóli

Í dag bættum Óbyggðaferðir við einu Bombardier Can-Am Outlander Max 650 cc hjóli.
Flotinn okkar samanstendur þá af átta 650 cc Outlander Max hjólum, fjórum 800cc
og tveimur 400cc hjólum. Öll okkar hjól eru Bombardier Can-Am Outlander Max.


- 23. mars 2008 -
Upp á Heklutopp

Páskadagskvöldið var tekin sú skyndiákvörðun að reyna við toppinn á Heklu í ljósaskiptum.
Við fórum á fimm hjólum og gekk ferðin nokkuð vel til að byrja með, en svo fór færi að þyngjast
er við vorum komnir í 1.100m hæð. En með þrjósku og seiglu tókst okkur að komast alla leið.
Þegar á toppinn var komið blasti við okkur ógleymanlegt útsýni. Fullt tungl, ljósin úr sveitinni
og norðurljósin dönsuðu á himninum. Hægt er að sjá myndir frá ferðinni hér ásamt fleiri
myndum sem tengjast Óbyggðaferðum og Hólaskógi.