|
Hólaskógur er fyrsti skálinn á Gnúpverjaafrétti, en hafa fjallmenn haft
aðstöðu þar síðan 1934. Til minnja um það er elsti leitarmannakofi landsins
og var hann endurreistur 1998. Hólaskógur er vel þekktur meðal hestamanna, enda
liggja margar af helstu reiðleiðum landsins um staðinn. Mikil áhersla er lögð á
þjónustu við hestamenn á sumrin. Hestagerðið er þrískipt, rúmgóð
hnakkageymsla og hey er innifalið í gistigjaldinu.
Nýji skálinn er á tveimur hæðum og tekur um 80 manns í gistingu. Matsalur,
eldurnaraðstaða og salerni er á báðum hæðum og tvennar sturtur eru á neðri
hæðinni. Í vetur var síðan glæsileg, vel útbúin og rúmgóð sauna tekin í notkun.
Ágætis fundaraðstaða er í skálanum og er skjávarpi á staðnum og annað til fundarhalda.
|