Óbyggðaferðir ehf
Óbyggðaferðir ehf var stofnað haustið 2006. Upphaflega var stefna Óbyggðaferða að
bjóða uppá ferðalög á fjórhjólum um hálendi Íslands. En í janúar 2007 var samið við
Skeiða- og Gnúpverjahrepp um leigu og rekstur á skálanum í Hólaskógi skammt frá Þjórsárdal.
Í framhaldinu var miðstöð Óbyggðaferða flutt í Hólaskóg, þar sem við bjóðum uppá ýmiskonar
þjónustu við ferðafólk og hópa. Við hjá Óbyggðaferðum leggjum mikla áherlsu á að gera aðbúnaðinn
sem bestan í Hólaskógi. Nýverið tókum við sauna í notkun og er ætlun okkar að bæta aðstöðuna enn betur.
Aðalstarfsemi Óbyggðaferða er sem fyrr skoðunarferðir á fjórhjólum. Hólaskógur er afar vel
staðsettur og er þaðan stutt í margar af helstu náttúruperlum landsins. Óhætt er að segja að
ferðamenn geti komið aftur og aftur og séð alltaf eitthvað nýtt í hvert skipti.
Við minnum á að allir er velkomnir í Hólaskóg sem vilja kynna sér starfssemi okkar nánar.
Hægt er að panta gistingu eða fjórhjólaferðir hjá Unnari í síma 661 2503 eða Solveig í síma 661 2504.
Einnig er hægt að panta eða senda fyrirspurnir á obyggdir@obyggdaferdir.is.
|